RAFLÍNUR
Videóinnsetning eftir Örnu G. Valsdóttur og Karl Guðmundsson, opnar í Deiglunni 17. júní kl. 17.00.
Opnun 17. júní kl. 17.00 – 22.00
Opið 18. júní kl. 14.00 – 22.00
Arna G. Valsdóttir og Karl Guðmundsson.
Bjóða gestum að ganga inn í myndbands innsetningu/lifandi málverk í Deiglunni.
Í verkinu mætir rafmagnshjólastóll rafrænni myndsköpun og dansandi línum.
Samstarf listamannanna
Árið 2017 hóf Arna G. Valsdóttir að skrásetja með myndbandstökum listræna samvinnu Karls
Guðmundssonar og Rósu Kristínar júlíusdóttur sem eiga langan feril saman í listinni. Þarna varð
til nýr þráður í þeirra listræna samstarfi. Tökur þessar leiddu til þess að 17. júní árið 2019 var
formlega lagt af stað við gerð heimildamyndar um líf og list Kalla. Leikstjóri myndarinnar sem er
í vinnslu er Friðrik Þór Friðriksson og þær Vilborg Einarsdóttir og Hlín Jóhannesdóttir hjá Ursus
Parvus eru framleiðendur. Arna G. Valsdóttir er listrænn stjórnandi myndarinnar. Arna sýndi í
fyrsta sinn vídeóverk með þeim Karli og Rósu árið 2019 í Mjólkurbúðinni á Akureyri og tók síðan
þátt í vinnu við einkasýningu Karls í Listasafninu á Akureyri 2021. Á sýningunni var ennfremur
vídeó-málverk eftir Örnu og Kalla, sem byggði á samstarfi hans og Rósu Kristínar.
Um listamennina
Karl Guðmundsson hóf myndlistarnám 6 ára á barna- og síðar unglinganámskeiðum
Myndlistaskólans á Akureyri. Hann stundaði þar nám í átta ár undir handleiðslu Rósu Kristínar
Júlíusdóttur, myndlistarkennara og listakonu. Karl hélt áfram námi, eftir árin í
Myndlistarskólanum, á vinnustofu Rósu Kristínar. Samstarf þeirra var lengi vel samspil nemanda
og kennara en þróaðist markvisst yfir í samvinnu tveggja vina, félaga í listinni. Frá árinu 2000
hafa þau haldið margar sameiginlegar listsýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Árið 2021
var Karl með einkasýningu í Listasafninu á Akureyri og var Rósa Kristín sýningarstjóri. Karl
útskrifaðist frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, myndlistasviði, vorið 2007. Meðal kennara
hans voru Arna Guðný Valsdóttir og Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistarmenn og
myndlistarkennarar.
Arna Guðný Valsdóttir lauk myndlistarnámi frá Grafíkdeild MHí 1986 og frá Audio/Videodeild
Jan van Eyck Academie í Hollandi 1989. Hún hefur lengst af búið og starfað á Akureyri en sýnt
verk sín víða hér á landi og erlendis. Listsköpun Örnu einkennist af innsetningarverkum þar sem
hún vinnur með samspil hreyfimyndar/hljóðs/ og arkitektúrs. Í sumum verka sinna nýtir Arna
eigin söngrödd og fléttar hana inn í verkin og sýningarrýmið.
Arna hefur kennt myndlist á öllum skólastigum síðustu 30 ár og starfar í dag við
myndlistarkennslu við listnámsbraut Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Um sýninguna
Arna G. Valsdóttir og Karl Guðmundsson leiða saman hesta sína í samvinnuverkinu RAFLÍNUR í
Deiglunni á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem Karl tekur þátt í að skapa vídeó innsetningu en
hér beita listamennirnir myndbandstækninni til að skyggnast inn í heim hvors annars.
Titill sýningarinnar vísar annarsvegar í rafmagnið sem kvikmynda/vörpunartæknin byggir á, þar
sem teiknað er í rýmið með rafljósi, og hinsvegar í rafmagnshljólastól Karls sem nýttur er í
verkinu. Í Raflínum ferðast Karl um rýmið á rafmagnshjólastólnum sem hann stýrir alfarið sjálfur
með höfðinu en ferðalag hans má skoða sem línur í rýminu. Á móti ferðalagi þessu birtast brot
úr fyrsta vídeóverkinu sem Karl og Arna unnu saman ”Hugarró” sem sýnt var á einkasýningu
Karls í Listasafninu á Akureyri 2021. Í því verki dansa línurnar sem einkenna málverk Kalla, unnin
í áralöngu samstarfi hans við Rósu Kristínu Júlíusdóttur. Línan er ferðalag frá einum punkti til
annars, hvort sem hún er máluð eða ”ósýnileg” eins og þegar listamaður ferðast í
rafmagnshjólastól frá einum punkti til annars. Dansandi Línur er einmitt heiti á
heimildarmyndinni um líf og list Karls.
Grunnurinn í verkinu Raflínur er fyrsta myndband sem Karl tók upp sjálfur. Hann ferðaðist um
heimili sitt og endaði á því að mæta sjálfum sér í spegli. Þetta verk hafa þau Arna og Kalli nú
tengt við tökur af málverkum Kalla sem hreyfast í myndfletinum og tökur Örnu af Kalla ferðast
um.
Raflínur byggir á listrænu samtali Karls og Örnu sem hófst árið 2017. Samtal um hugmyndafræði
og myndræna sýn eða hugsun. Um myndbyggingu, liti, form, fjarlægðir, afstöðu, margfeldi,
gagnsæi, mynstur, endurtekningu, frádrátt, hreyfingu í myndfleti, orku og útgeislun þar sem
listamennirnir reyna að sjá með augum hvors annars. Um tilfinningar og upplifanir og hvernig
hægt er að miðla þeim í myndfleti. Um hvernig hægt er að nýta myndbandstæknina til að koma
línum Kalla á hreyfingu.
Raflínur er kannski leit eftir því sammannlega og því einstaka. Því sem tengir okkur saman í
öllum okkar fjölbreytileika
Karl um Rafmagnshjólastólinn
Í stólnum get ég setið og keyrt. Ég er mun sjálfstæðari þegar ég sit í rafmagnshjólastólnum en í
þeim gamla. Ég get t.d. keyrt um sjálfur og stefni á að keyra einn heim til mömmu og pabba. Ég
tek mér meira rými í rafmagnshjólastólnum en í þeim gamla. Rafmagnshjólastóllinn gerir mig
stærri. Í honum fæ ég nýtt sjónarhorn á fólk og umhverfið. Ég get staðið uppréttur í stólnum
sem er mér mikilvægt. Ég er í augnhæð við annað fólk. Það er ekki litið niður til mín. Að standa í
stólnum veitir mér hvíld frá löngum setum, styrkir beinin og hefur góð áhrif á ýmsa líkamlega
þætti líka.
Hins vegar er erfitt að stýra rafmagnshjólastólum sem ég geri með höfðinu. Æfingarnar hafa
tekið mig mjög langan tíma og ennþá þreytist ég fljótt þegar ég stýri stólnum. Ég þarf að æfa
mig meira til að verða sjálfstæðari.
Sjálfstæðið útheimtir mikla orku og æfingar.
Sýningin er hluti af Listasumri á Akureyri 2023
Deiglan – Kaupvangsstræti 23, Akureyri.