Drukknuðu tröllin
Málverkasýning Cassady Bindrup opnar 13. október kl.14.
„Ég er bandarískur listamaður og hef búið á Akureyri síðasta árið. Ég er að reyna að sýna og selja eitthvað af verkum mínum. Ég vinn mest í vatnslitamyndum og hef verið að mála íslenskar sjávarmyndir og steina.“
Segir Cassady um sig og sitt starf. Hér er Cassady á instagram: insta @cassady_artwork
Landslagsverk Cassady Bindrup verða til sýnis daglega til 16. október og er opið frá 14 – 21 alla dagana.