A! gjörningahátíð í Deiglunni
Laugardaginn 8. október kl 14 og 21.
Eins og undanfarin ár er Gilfélagið samstarfsaðili um A! gjörningahátíð sem stendur frá 6. til 9. október. Að þessu sinni eru tveir gjörningar í Deiglunni laugardaginn 8. október. Rashelle Reyneveld fremur sinn gjörning frá 14 – 19, um er að ræða þáttökugjörning og er frjáls aðgangur allann tímann sem gjörningurinn stendur yfir. Seinni gjörningurinn er frá fjöllistafólkinu í Tricycle Trauma þeim Ivana Pedljo og Jasmin Dasović hefst sá kl 21 og er áhorfendum ætlað að vera mættum tímanlega fyrir sýninguna.
Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar