Næmm
Sindri Leifsson & Jóhanna Rakel opna sýninguna Næmm í Deiglunni föstudaginn 26. ágúst klukkan 21:00.
Sindri Leifsson & Jóhanna Rakel opna sýninguna Næmm í Kaktus og Deiglunni 26. og 27. ágúst. Sýningin samanstendur af skúlptúrum úr timbri og stáli ásamt forgengilegum og ætum efnivið. Sýningin verður virkjuð með skilningarvitum gesta og gangandi, sem gefst tækifæri á að bragða á hluta verkanna. Auk þess flytur Jóhanna Rakel tónverk sem er samið sérstaklega fyrir Chilli & Rabarbara, Bláber og Kartöflur & Sítrónur.Lifandi viðburður fer fram í Deiglunni föstudaginn 26. ágúst og opnar klukkan 21:00. Einnig verður sýning með verkum Sindra í Kaktus.