2000volt
Tónleikar í Deiglunni 30. júli.
![](http://listagil.is/wp-content/uploads/2022/07/thumbnail_2000volt-poster-styrktaradilar-724x1024.jpg)
Hátíðin 2000volt verður haldin í fyrsta skipti laugardaginn 30 júlí í Deiglunni á Akureyri. Fram koma 5 grasrótar hljómsveitir með ólíkar tónlistar stefnur. Bæði eru lög flutt á íslensku og ensku og mjög frumlegar lagasmíðar. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Húsið opnar kl 17 og hefjast tónleikarnir kl 18 og standa til 22.00.
Fram koma:
kl 18.00 Brenndu bananarnir
Kl 18.45 Ari Orrason
Kl 19.30 Dream the Name
Kl 20.15 Miomantis
Kl 21.00 Critical