Aðalfundur Gilfélagsins 16. maí
Þrítugasti aðalfundur Gilfélagsins verður haldinn í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23 Akureyri sunnudaginn 16. maí kl 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fastir dagskrárliðir aðalfundar eru eru:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
3. Ákvörðun árgjalds.
4. Kosning formanns og stjórnar.
5. Önnur mál.
Félagsmenn hvattir til að mæta og gefa kost á sér til starfa í félaginu. Nöfn þeirra sem vilja gefa kost á sér til stjórnarstarfa þurfa að berast stjórninni eigi síðar en 10. Maí á netfangið gilfelag@listagil.is
Hægt er að skrá sig í félagið með því að senda póst á sama netfang, með nafni heimilisfangi og netfangi.
Léttar veitingar í boði.
– Stjórnin