Myndlistarverkstæði fyrir börn
Opið myndlistarverkstæði fyrir börn á aldrinum 6 – 12 ára í Deiglunni laugardaginn 17. apríl kl. 13:00 – 16:00.
Hægt verður að þrykkja einþrykk og hæðarprent með einföldum efnum á pappír. Einnig stendur til boða að mála, gera skúlptúra úr tré, pappír og endurunnu efni. Myndlistarmenn og kennarar leiðbeina. Börnin geta komið og verið eins lengi eða stutt og þau vilja og prófað ýmsa miðla. Lagt er til að forráðamenn séu nálægt og við hvetjum forráðamenn og börn til að vinna saman. Börnin geta tekið verkin með sér heim að degi loknum.
Viðburðurinn er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri og er styrktur af Akureyrarstofu