LITVÖRP – Myndlistasýning
Föstudaginn 26. febrúar kl. 20-22
Laugardaginn 27. febrúar kl. 13-17
Hafdís Helgadóttir, gestalistamaður Gilfélagsins í febrúar 2021 sýnir afrakstur dvalar sinnar með sýningunni LITVÖRP í Deiglunni á Akureyri. Til sýnis verða ný verk; málverk, bókverkasíður og fjölfeldi unnin út frá umhverfi Akureyrar. Verið öll hjartanlega velkomin.
Í Deiglunni er grímuskylda og fjöldatakmarkanir virtar, sýnum hvort öðru tillitsemi og gefum gott pláss.
Hafdís er fædd á Patreksfirði en býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist af málaradeild í Myndlista- og Handíðaskóla Íslands og er með meistaragráðu frá The Academy of Fine Art (dept. of Time and Space) í Helsinki frá 1996. Hún hefur unnið í ýmsa miðla, myndband, teikningu, ljósmyndun, innsetningar og málverk og hefur sýnt verk sín á Íslandi, þ.á.m. í Listasafni Íslands, Nýlistasafninu, Norræna Húsinu, Listasafni Árnesinga og Landsbókasafni Íslands og erlendis, í Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Þýskalandi og Marókkó. Hún hefur unnið og dvalið á gestavinnustofum í Marókkó, Álandseyjum, Gautaborg og Berlín.
Megináherslan í minni vinnu síðastliðin ár eru litir. Rannsóknir sem leiða smám saman að málverki, um samspil lita í náttúrunni eins og þeir birtast á ákveðnum tíma dags, í mismunandi árstíðum og veðri. Ég dvaldi í listabúsetu í Marokkó fyrir nokkrum árum og lærði þar um rúmfræðileg mynstur í íslamskri hefð sem veitti mér innblástur og leiddi til geometrískrar myndbyggingar í mínum málverkum, sem grunnur að megináherslunni, samspili lita.
Litapallettan er fundin í gegn um skissuvinnu, rannsókn á hvernig litirnir birtast og vinna saman auk birtu og andrúmslofts hverrar stunda. Ljósmynd er tekin á staðnum til viðmiðunar og vitnar í stað og tíma.
Á vinnustofunni þróast fleiri verk sem tengjast þessu ferli beint eða óbeint og úr verður „vinnusería” sem samanstendur af einhverjum eða öllum eftirfarandi þáttum: bókverk, margfeldi, ljósmynd, skissu og málverki. Þessar seríur eiga þátt í að afhjúpa listvinnsluferlið að minnsta kosti upp að vissu marki.