Leyndardómar jafnvægislistanna – Sirkussmiðja
Húlladúllan býður fjölskyldur velkomin í Deigluna til að spreyta sig á sirkuslistum miðvikudaginn 10. apríl klukkan 17:00 – 18:30. Þemað í þetta skiptið eru leyndardómar jafnvægislistanna. Við munum læra að halda jafnvægi á ýmsum áhöldum, að halda jafnvægi á sjálfum okkur og að lokum munum við læra að halda jafnvægi í samvinnu við félaga okkar. Börn eru sérstaklega hvött til þess að koma með foreldra sína með sér eða eldri systkini því það sem þið lærið í smiðjunni getið þið haldið áfram að æfa og leika með heima!
Þáttaka í smiðjunni er ókeypis en nauðsynlegt er að taka frá pláss með því að senda tölvupóst á hulladullan@gmail.com. Athugið að aðeins eru 30 pláss í boði.