Myndlistaverkstæði
Opið myndlistarverkstæði fyrir börn á aldrinum 7 – 10 ára í Deiglunni laugardaginn 13. Apríl kl. 13:30 – 17:30.
Myndlistakennararnir Sigrún Birna Sigtryggsdóttir og Guðmundur Ármann Sigurjónsson verða á staðnum til að leiðbeina.
Til boða stendur að mála, gera skúlptúra úr tré, pappír og endurunnu efni. Einnig verður hægt að þrykkja hæðarprent með einföldum efnum á pappír. Börnin geta komið og verið eins lengi eða stutt og þau vilja og prófað ýmsa miðla. Lagt er til að forráðamenn séu nálægt og við hvetjum forráðamenn og börn til að vinna saman.
Börnin geta tekið verkin með sér heim að degi loknum.
Fatahlífar verða í boði en við hvetjum þátttakendur til að mæta í fötum sem mega skemmast.
Engin skráning nauðsynleg, bara mæta.
Deiglan, Kaupvangsstræti 23, Akureyri.
Viðburðurinn er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri og er styrktur af Akureyrarbæ.