Rafmagnsgítarinn í djassi – Tónleikar
10. júlí kl. 16.00. Listasumar í Deiglunni: Skemmtilegir djasstónleikar tríósins BabyBop.
Lokaviðburður fjörugrar helgar sem tileinkuð er rafmagnsgítarnum í djassi í tilefni Listasumars. Klukkustundarlangir tónleikar tríósins Babybop í Deiglunni. Allir velkomnir.
Babybop er djazzgítartríó samsett af Dimitrios Theodoropoulos (g) Jóel Erni Óskarsyni (g) og Emblu Dýrfjörð (b).
Helgin 8.-10. júlí verður helguð rafmagnsgítarnum í djassi undir stjórn tónlistarmannsins Dimitrios Theodoropoulos.
Áhugasamir geta skoða nánar fyrirlestur á föstudeginum HÉR og tveggja daga listasmiðju HÉR.