Stjórnarfundur 22. nóvember 2018
- stjórnarfundur starfsárið 2018/19
Haldinn í Deiglunni 22. nóvember kl 18:15
Mætt eru úr stjórn: Guðmundur Ármann, Sigrún Birna, Sóley Björk, Aðalsteinn og Heiðdís.
Dagskrá:
- Handverksmessur 1. og 8. desember næstkomandi.
Góð aðsókn er að handverksmessunum og er orðið nánast fullbókað.
Guðmundur og Heiðdís ganga frá bréfi til sýnenda.
Æskilegt er að fólk greiði fyrirfram inn á reikning félagsins, gjaldkeri gefi út kvittanir.
Boðið veður upp á heitt súkkulaði og piparkökur.- Sigrún Birna undirbýr það.
- Svar Akureyrarstofu vegna erindis Gilfélagsins um breytingar á húsnæði Deiglunnar.
Eftirfarandi svar hefur borist:
Akureyri, 05.11.2018
2018100439 05-815
Efni: Gilfélagið – beiðni um breytingar á húsnæði Deiglunnar
Sæll Guðmundur!
Erindi Gilfélagsins er varðar beiðni um breytingar á húsnæði Deiglunnar var tekið fyrir á fundi
stjórnar Akureyrarstofu fimmtudaginn 1. nóvember sl. Eftirfarandi var bókað:
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.
Anna María Hjálmarsdóttir V-lista sat hjá við afgreiðslu erindisins.
Nánari upplýsingar veitir Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu.
Þetta tilkynnist hér með.
Virðingarfyllst,
f.h. Akureyrarbæjar
Kristinn Jakob Reimarsson
sviðsstjóri
Þórgnýr Dýrfjörð, hefur verið í sambandi við Guðmund Ármann og vill að Ketilhús verði skoðað frekar fyrir verkstæði. Samþykkt að skoða aðstöðuna þar. En vissulega er þessi niðurstaða mikil vonbrigði og mun tefja málið.
- Önnur mál
- Umsjón með gestalistamanni desember mánaðar, Guðmundur tekur hana að sér.
- Ekki varð af námskeiði Susan Singer vegna þess að ekki náðist næg þátttaka, sem er leitt. Það er vissulega ástæða til að bjóða upp á stutt ódýr námskeið næsta haust.
Fundi slitið 19:30