Verið velkomin á opnun TRANSLATIONS í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23, laugardaginn 26. ágúst kl. 14 – 17 og þiggja léttar veitingar. Sýningin er einnig opin sunnudaginn 27. ágúst kl. 14-17.
Dönsku myndlistarmennirnir Else Ploug Isaksen og Iben West munu sýna verkefnið TRANSLATIONS í Deiglunni. Sýndar verða ljósmyndir og textar.
TRANSLATIONS er verk í vinnslu. Iben og Else eru gestalistamenn Gilfélagsins í ágúst og hafa skipts á ljósmyndum og texta við fjóra íslenska rithöfunda, Hallgrím Helgason, Einar Má Guðmundsson, Kristínu Ómarsdóttur og Sigurbjörgu Þrastardóttur. Samtalið hefur myndast með því að Iben og Elsa senda ljósmyndir frá dvöl þeirra á íslandi og rithöfundarnir svara með orðum og öfugt. Skiptin eru eins og hugarflæði, ljóðrænt flæði sem hefur sinn eigin veruleika.
Við erum hluti af Listasumri!
Gilfélagið er styrkt af Akureyrarstofu
///
You are invited to the opening of TRANSLATIONS in Deiglan, Kaupvangsstræti 23, on saturday, august 26th at 2 – 5pm. Exhibition is also open on sunday 2 – 5pm.
The two Danish visual artists, Else Ploug Isaksen and Iben West exhibit the project TRANSLATIONS in Deiglan. Photographs and texts will be shown.
TRANSLATIONS is a work in progress. During their stay as Artists in Residency, Iben and Else have exchanged photos and words with four Icelandic writers, Hallgrímur Helgason, Einar Már Guðmundsson, Kristín Ómarsdóttir and Sigurbjörg Þrastardóttir. The dialogue consists of Iben and Else sending photos from their stay in Iceland, and the authors answer with words and vice versa. The exchange is like a stream of thoughts, a poetic flow – having its own logic.