Trönurnar sýna í Deiglunni
Sýningin opnar laugardaginn 10. september kl 13.00
![](http://listagil.is/wp-content/uploads/2022/09/tronur1-1024x695.jpeg)
Trönurnar er hópur kvenna sem stundaði nám saman í Listasmiðjunni Fræðsla í formi og lit veturinn 2016-2017 undir leiðsögn Bryndísar Arnardóttur og Guðmundar Ármanns Sigurjónssonar. Þess utan hafa þær sótt ýmiss námskeið saman og sitt í hvoru lagi.
„Við hittumst að jafnaði einu sinni í viku og málum saman. Eins og hjá flestum truflaði Covid 19 okkur um tíma en nú erum við að koma okkur í gang aftur.“
Sýningin þeirra að þessu sinni kemur úr ýmsum áttum og ber ekki sérstaka yfirskrift.
Sýningin er opin 10. og 11. september frá 13 – 17.
![](http://listagil.is/wp-content/uploads/2022/09/tronur2-1024x409.jpeg)
![](http://listagil.is/wp-content/uploads/2022/09/tronur3-995x1024.jpeg)
![](http://listagil.is/wp-content/uploads/2022/09/tronur4-1024x772.jpeg)