Aðalfundur Gilfélagsins 2022
Aðalfundur Gilfélagsins verður haldinn í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23 Akureyri sunnudaginn 22. maí kl 13.00.
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
Fastir dagskrárliðir eru:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
- Ákvörðun árgjalds.
- Kosning formanns og stjórnar.
- Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og gefa kost á sér til starfa í félaginu.
Hægt er að skrá sig í félagið með því að senda póst á gilfelag@listagil.is, með nafni og kennitölu.
Léttar veitingar í boði.
– Stjórnin