Breiköpp – Sigbjørn Bratlie
Myndbandverkið Breiköpp eftir Sigbjørn Bratlie verður sýnt í Deiglunni laugardaginn 4. des og sunnudaginn 5. des kl. 15 – 17.
Breiköpp
HD video, 10 min.
Myndbandið er byggt á klisjunni um „breiköpp senu“ eins og sést í hundruðum Hollywood kvikmynda. Hægt er að skilja hana bæði sem stuttmynd og sem myndbandsupptöku af listrænum gjörningi: Maður (listamaðurinn sjálfur) hefur ákveðið að hætta með kærustunni sinni og valdi sér sér huggulegan, rómantískan veitingastað til þess, í von um að hún verði ekki sýnilega reið. En þar sem samtalið fer fram á íslensku, tungumáli sem maðurinn talar mjög illa, verður það að bardaga þar sem kærastan, sem talar móðurmálið, getur snúið upp á merkingu orðs eða orðasambands á sekúndubroti og í kjölfarið stýra samtalinu í þá átt sem hún vill.
Um listamanninn:
Ég er 48 ára, fæddur í Osló og útskrifaðist frá Central Saint Martins College of Art and Design í London árið 2002. Ég er búsettur í bæði Osló og Gdynia, á pólsku Eystrasaltsströndinni. Mínir miðlar eru myndbandsverk, innsetningar og málverk. Listaverkin mín hafa huglægan, greinandi og of húmorískan blæ. Síðustu níu ár hafa myndbandsverkin mín snúist um þemað tungumál, eða nánar tiltekið; erlend tungumál.
Þessi myndbönd eru lokaútkoma gjörningaferlis þar sem ég eyði fyrst um það bil einu ári í að kenna sjálfum mér (misgagnleg) erlend tungumál og síðan bý ég til listverkefni þar sem ég á samskipti við einhvern á þessu tungumáli. Mörg þessara verkefna fjalla um aðstæður þar sem aðgangur að merkingu og gangkvæmum skilningi er hamlað með skorti á orðaforða, misskilning, slæmri málfræði eða framburði.
Viðburðurinn er hluti af gildegi – www.gildagur.is