Ljósmyndir og litaflóð
Ljósmyndir og litaflóð er heiti sýningar ljósmyndarans og blaðamannsins Áskels Þórissonar í Deiglunni, Listagili. Sýningin opnar á síðdegis á fimmtudag (17-19) og verður síðan opin föstudag, laugardag og sunnudag kl. 13 – 17.
Fimmtudagur 29. júlí kl. 17 – 19
Föstudagur 30. júlí – sunnudagur 1. ágúst kl. 13 – 17
Um árabil hefur Áskell einbeitt sér að náttúrulífsmyndum og gjarnan tekið nærmyndir af því sem við skoðum sjaldan. Þá hefur hann unnið myndirnar í myndvinnsluforritum og náð fram litbrigðum sem gera myndirnar ólíkar því sem við eigum að venjast. “Fyrir fjórum árum eignaðist ég nýja myndavél og macro-linsu. Þessi tækjabúnaður opnaði fyrir mér alveg nýjan heim; nýja möguleika,” segir Áskell. “Með myndvinnsluforritum get ég unnið myndirnar þar til þær fá það yfirbragð sem mér líkar. Ég hika ekki við að ýkja liti og draga fram þá liti sem ber minna á.” Myndirnar eru af ýmsum stærðum en allar eru þær prentaðar á striga sem er strekktur á blindramma.
Áskell er Akureyringur að ætt og uppruna. Hann var m.a. blaðamaður og síðar ritstjóri Dags. Síðar stofnaði hann Bændablaðið fyrir Bændasamtök Íslands og ritstýrði blaðinu um árabil.
Heimasíða: www.askphoto.is
Netfang: ask@simnet.is
Deiglan, Kaupvangsstræti 23, Akureyri.