Opið fyrir umsóknir í gestavinnustofu
Gilfélagið auglýsir eftir umsóknum til dvalar í gestavinnustofu Gilfélagsins. Um er að ræða mánaðardvalir á tímabilinu júlí til desember 2018. Gestavinnustofan er fullbúin íbúð með vinnustofu sem hentar einum listamanni eða pari. Innangengt er í viðburðarrýmið okkar Deigluna þar sem er í boði að halda sýningu eða annarskonar viðburð í lok dvalar eða eftir samkomulagi. Íbúðin er staðsett í Kaupvangsstræti, eða Listagilinu í miðbæ Akureyrar þar sem er stutt að sækja alla helstu þjónustu svo ekki sé minnst á menningarlífið. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna og umsóknarferlið má nálgast HÉR
Gil Artist Residency is open for applications for one month stays in July to December 2018. Application deadline is November 1st.
Gil Artist Residency is an Artist in Residence Program located in Akureyri, North Iceland. We are located in the town center, in the Art Street where the Art Museum and several galleries, artist studios, restaurants and bars are located. At the end of the street is the shore of Eyjafjörður, a beautiful mountain view of the fjord. Akureyri is a small town with an easy access to open nature.
We can accommodate one or two artists, in a private apartment with a studio, fully equipped kitchen & bathroom and a gallery for final events & exhibitions. Our exhibition space Deiglan is next door and has an internal access from the studio.