THEN AND NOW – ÞÁ OG NÚ
Gestalistamaður Gilfélagsins, Dr. Thomas Brewer, opnar sýningu í Deiglunni laugardaginn 24. júlí 2021 kl. 14 – 17. Sýningin verður einnig opin sunnudag kl. 14 – 17.
Þá vísar til verka sem hann vann í gestavinnustofu Gilfélagsins 2016 og Nú vísar til nýrra verka unnin á gestavinnustofunni, pappírsskúlptúrar sem Thomas kallar Tafla. Tímabilið þar á milli eru keramikverk auk jazz og blús tónlistar sem hann gefur út í eigin nafni.
Dr. Thomas Brewer er með B.A. gráðu í myndlist og keramík frá Southern Illinois University Carbondale (1973), M.A. gráðu í myndlist frá University of Illinois Urbana-Champaign (1985) og Ph.D. gráðu í myndlist frá Florida State University (1989). Hann hefur unnið sem keramíker og síðar kennt listir og listnám á háskólastigi í 35 ár. Dr. Brewer hefur setið í ýmsum nefndum og stundað listrannsóknir meðfram kennslu og sýningum.
Verið öll hjartanlega velkomin.