Vilt þú vera með viðburð á Akureyrarvöku?
Vilt þú vera með viðburð á Akureyrarvöku?
Gilfélagið auglýsir eftir áhugaverðum viðburðum á Akureyrarvöku en Deiglan er laus 30. – 31. ágúst. Deiglan er fjölnota rými, tilvalið fyrir ýmsa menningarviðburði s.s. myndlistasýningar, gjörninga og tónleika en Gilfélagið mun styrkja viðkomandi um salaleigu og einnig sjá um kynningu.
Umsóknarfrestur er opin og því hvetjum við alla til að senda inn umsóknir sem allra fyrst á gilfelag@listagil.is með greinargóðum upplýsingum um hverskonar viðburð er að ræða, hugmyndir að opnunartíma og myndefni.