Afmælishátíð!
30 ára Afmælishátíð Gilfélagsins laugardaginn 16. október kl 17.00 í Deiglunni.
Gilfélagið á 30 ára afmæli um þessar mundir og í tilefni af því sýna félagar í Gilfélaginu verk sín í Deiglunni sal Gilfélagsins í Listagilinu á Akureyri og blása til hátíðar laugardaginn 16. október með léttri hátíðardagskrá og léttum veitingum. Hátíðin hefst kl. 17.00.
Félagasýningn stendur frá 14. – 19. október og er opin frá 17.00 – 20.00 virka daga og 14.00 – 17.00 helgina 16. – 17. október. Aðgangur er ókeypis á báða viðburðina.
Gilfélagið var formlega stofnað af áhugafólki um menningarstarfsemi 30. nóvember 1991. Stofnun Gilfélagsins markaði upphaf að uppbyggingu Listagilsins á Akureyri, þegar félagið tók yfir hluta húsnæðis í Grófargili sem þá hafði lokið hlutverki sínu sem iðnaðarhúsnæði og stóð autt. Með stuðningi Akureyrarbæjar rekur Gilfélagið fjölnota salinn Deigluna og hefur umsjón með gestavinnustofu. Markmið félagsins er að efla menningar- og listalíf í bænum, auka tengsl almennings við listir og koma á samskiptum norðlenskra listamanna við innlenda og erlenda listamenn.
Í tilefni 30 ára afmælisins stendur félagið fyrir nokkrum viðburðum og sýningum á komandi mánuðum. Fyrsti viðburðurinn var “Malpokar leyfðir”, menningardagskrá Populus Tremula í Deiglunni þann 11. september, sem þótti takast sérlega vel. 8. janúar opnar 30 ára sögusýning Gilfélagsins sem markar endalok 30 ára afmælishátíðahaldanna. Þar á milli eru aðrir menningar viðburðir á döfinni sem verða auglýstir þegar þar að kemur.
Gilfélagið lítur björtum augum til framtíðarinnar og hyggst vera virkt og mótandi afl í deiglu menningarframboðs á svæðinu um ókomin ár.