Litríkar gellur – málverkasýning
Litríkar gellur
Gellur sem mála í bílskúr í Deiglunni
Gellur sem mála í bílskúr í Deiglunni 30.5 – 31.5.2020 kl. 14 – 17 og 6. – 7.6. kl. 14 – 17.
Allir hjartanlega velkomnir. Léttar veitingar í boði.
Í hópnum eru átta listamenn sem hittast vikulega og mála saman í bílskúr. Hópurinn kynntist í Listfræðslunni á Akureyri og stofnuðu klúbbinn Gellur sem mála í bílskúr í janúar 2016. Markmið hópsins er að hittast og styðja hvert annað í listsköpuninni og hafa gaman.
Hópurinn velur sér sameiginlegt þema fyrir hverja sýningu en hver og einn vinnur svo á persónulegan hátt með ólíkri nálgun á viðfangsefnið og útkoman verður skemmtileg blanda. Þema sýningarinnar er er litríkar gellur og á sýningunni verða verk af ýmsum toga unninn í akríl, olíu og í vatnslitum.
Í hópnum eru Anna María, Barbara, Björgvin, Harpa, Jóhanna, Jónína, Kristín og Líney.
Facebook: www.facebook.com/gellursemmala
Instagram: @gellursemmala
Sýningin er unnin í samstarfi við Gilfélagið.