Til félagsmanna í Gilfélaginu – Aðalfundarboð
Til félagsmanna í Gilfélaginu,
Nú líður að aðalfundi félagsins, sem verður 19. maí í Deiglunni kl. 14.
Einn stjórnarmaður mun ganga úr stjórninni, að öðru leiti gefa sitjandi stjórnarmeðlimir kost á sér til áframhaldandi setu.
Á aðalfundinum mun stjórnin gera að tillögu sinni að Aðalsteinn Þórsson komi nýr inn í stjórnina.
Við viljum benda félagsmönnum á að þeir geta komið með uppástungur um fólk í stjórnina, en þær uppástungur þurfa að berast stjórninni í síðasta lagi þremur vikum fyrir auglýstan aðalfund, sem er í viku 18, eða síðasta lagi miðvikudaginn 2. maí. Hægt er að senda uppástungur á tölvupóstfang Gilfélagsins, gilfelag@listagil.is – Við viljum hvetja félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.
Að lokum vill stjórnin minna á að einungis félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald fyrir árið 2017 hafa kosningarétt á aðalfundinum.
Stjórn Gilfélagsins í apríl 2018