LÖG GILFÉLAGSINS
SAMÞYKKT Á AÐALFUNDI 20.06.92 OG MEÐ SAMÞYKKTUM BREYTINGUM SÍÐARI AÐALFUNDA, SÍÐAST 2016.
- gr
Félagið heitir Gilfélagið, samtök áhugafólks um listamiðstöð í Grófargili. Lögheimili þess og varnarþing er á Akureyri.
- gr
Markmið félagsins er að efla listsköpun og listflutning með því m.a. að skapa lista- og handverksfólki aðstöðu til að iðka list sína og búa því sem best athvarf til að sýna hana og flytja.
- gr
Markmið sínu hyggst félagið ná með því að:
- Standa að rekstri gestavinnustofu með og í samvinnu við Akureyrarbæ. Um þann rekstur gildir sérstök reglugerð.
- Stuðla að betra upplýsingaflæð um listir og listastarfsemi ásamt bættu skipulagi listmiðlunar og aukinni umfjöllun um listir í fjölmiðlum.
- Eiga samstarf við samtök listamanna og félög sem hafa sköpun, flutning og sýningu listar á stefnuskrá sinni.
- Stefna að því að Akureyri verði eftirsókarverð listvin.
- gr
Félagar geta allir orðið sem áhuga hafa og vinna vilja að markmiðum félagsins.
- gr
Félagið aflar sér tekna með:
- Félagsgjöldum
- Sjálfboðavinnu og / eða gjafaframlögum.
- Styrkjum frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum.
- Sölu á auglýsingum í þeim miðlum sem félagið ræður yfir.
- gr
Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins og rétt til setu á aðalfundi eiga allir félagar sem greitt hafa félagsgjald fyrir aðalfund. Stjórnin fer með æðsta vald milli aðalfunda.
- gr
Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok maímánaðar ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með 14 daga fyrrivara og gildir dagsetning póststimpils. Einnig skal auglýsa hann í einum prentmiðli og á veraldarvefnum.. Aðalfundaboði skal fylgja dagskrá og tillögur um lagabreytingar, sem þurfa að hafa borist stjórn féalgsins áður en aðalfundarboð er sent út.
Fastir dagskrárliðir eru:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
- Ákvörðun árgjalds.
- Kosning formanns og stjórnar.
- Önnur mál.
- gr
Formaður skal kosinn beinni og leynilegri kosningu. Auk hans eru kosnir fjórir í stjórn er skipta með sér verkum gjaldkera, ritara, auk tveggja meðstjórnenda. Einnig skal kjósa tvo varamenn í stjórnina og tvo endurskoðendur. Kjörtímabil formanns er eitt ár. Kjörtímabil annarra stjórnarmanna og varamanna er tvö ár.
- gr
Stjórn getur kallað saman félagsfund telji hún nauðsyn bera til. Stjórnin ber að halda félagsfund ef 20% félagsmanna óska þess skriflega. Slíka fundi skal boða öllum félögum með a.m.k. tveggja daga fyrirvara.
- gr
Félagsmenn bera sameiginlega ábyrgð á rekstri félagsins og þeim skuldbindingum sem félagið hefur tekið.
- gr
Stjórnin má aðeins taka nýjar fjárhagslegar skuldbindingar fyrir hönd félagsins samkvæmt samþykkt aðalfundar eða sérstaklega boðaðs félagsfundar.
- gr
Til að breyta lögum félagsins þarf samþykki 2/3 hluta fundarmanna á aðalfundi og tillögur um lagabreytingar að hafa verið kynntar í aðalfundarboði sbr. grein 7.
- gr
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Akureyri 01.06.2007