{"id":1890,"date":"2019-05-26T10:33:08","date_gmt":"2019-05-26T10:33:08","guid":{"rendered":"http:\/\/listagil.is\/?p=1890"},"modified":"2019-05-27T11:04:25","modified_gmt":"2019-05-27T11:04:25","slug":"skyrsla-stjornar-2018-19","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/listagil.is\/?p=1890","title":{"rendered":"Sk\u00fdrsla stj\u00f3rnar 2018 &#8211; 19"},"content":{"rendered":"<p><span style=\"font-size: large;\">Gilf\u00e9lagi\u00f0. Sk\u00fdrsla stj\u00f3rnar fyrir starfs\u00e1ri\u00f0 milli a\u00f0alfunda 2018\/2019<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>F\u00e9lagi\u00f0<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Gilf\u00e9lagi\u00f0 er n\u00fa a\u00f0 lj\u00faka tuttugasta og fimmta starfs\u00e1ri s\u00ednu, en \u00fea\u00f0 var stofna\u00f0 30. n\u00f3vember 1991. \u00dea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 fyrstu starfs\u00e1rin hafi fari\u00f0 \u00ed a\u00f0 m\u00f3ta hugmyndina um Listagili\u00f0 og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed uppbyggingunni me\u00f0 b\u00e6jaryfirv\u00f6ldum, a\u00f0 m\u00f3ta hugmyndir um listasafni\u00f0, galler\u00ed og vinnustofur \u00ed Gilinu. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu 10-12 \u00e1rum hafa or\u00f0i\u00f0 kaflaskil \u00fear sem uppbyggingunni \u00ed Listagili samkv\u00e6mt hugmyndum Gilf\u00e9lagsins var a\u00f0 megin atri\u00f0um loki\u00f0, eins og markmi\u00f0um f\u00e9lagsins var l\u00fdst \u00ed fyrstu l\u00f6gunum. S\u00ed\u00f0ast var \u00fea\u00f0 Ketilh\u00fasi\u00f0 sem var teki\u00f0 \u00ed notkun og var \u00fe\u00e1ttur stj\u00f3rnar f\u00e9lagsins algj\u00f6rlega \u00feess valdandi a\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00e9kk\u00a0 \u00fea\u00f0 mikilv\u00e6ga hlutverk \u00ed Listagilinu sem hefur sannast \u00ed gegnum \u00e1rin. \u00deetta allt hef\u00f0i veri\u00f0 \u00f3m\u00f6gulegt ef ekki v\u00e6ri fyrir mikla samst\u00f6\u00f0u listamanna \u00e1 Akureyri og n\u00e1grenni, en \u00fea\u00f0 hefur einmitt veri\u00f0 eitt af mikilv\u00e6gum markmi\u00f0um f\u00e9lagsins. Ekki m\u00e1 heldur gleyma hinum mikla stu\u00f0ning sem f\u00e9lagi\u00f0 f\u00e9kk fr\u00e1 58 listam\u00f6nnum sem g\u00e1fu f\u00e9laginu 104 listaverk sem stu\u00f0ning vi\u00f0 hugmynd f\u00e9lagsins a\u00f0 berjast fyrir uppbyggingu menningar- og listastarfsemi \u00ed Gilinu. Stj\u00f3rnin fagnar einhuga \u00feeirri miklu endurbyggingu sem Akureyrarb\u00e6r hefur sta\u00f0i\u00f0 fyrir \u00e1 h\u00fasn\u00e6\u00f0i Listasafnsins og telur hana mikilv\u00e6ga vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 \u00fe\u00e1 fl\u00f3ru sem fyrir er sem er \u00e1v\u00f6xtur \u00f6flugs grasr\u00f3tarstarfs til lengri t\u00edma.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00cd stj\u00f3rn f\u00e9lagsins sitja: Gu\u00f0mundur \u00c1rmann Sigurj\u00f3nsson forma\u00f0ur, Sigr\u00fan Birna Sigtryggsd\u00f3ttir ritari, Ingibj\u00f6rg Stef\u00e1nsd\u00f3ttir gjaldkeri, og me\u00f0stj\u00f3rnendur Hei\u00f0d\u00eds H\u00f3lm Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir og Ivar Freyr K\u00e1rason. Varamenn eru A\u00f0alsteinn \u00de\u00f3rsson og S\u00f3ley Bj\u00f6rk Stef\u00e1nsd\u00f3ttir. Sko\u00f0unarmenn reikninga eru Kristj\u00e1n Helgason og \u00de\u00f3ra Karlsd\u00f3ttir.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00cd \u00fathlutunarnefnd gestavinnustofu sitja<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">S\u00f3ley Bj\u00f6rk Stef\u00e1nsd\u00f3ttir, \u00d3lafur Sveinsson og Arna Gu\u00f0n\u00fd Valsd\u00f3ttir<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Stj\u00f3rnin hefur fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta a\u00f0alfundi haldi\u00f0 20 stj\u00f3rnarfundi, einn fund me\u00f0 stj\u00f3rn Akureyrarstofu og tvo opna fundi um framt\u00ed\u00f0arhugmyndir um notkun \u00e1 Deiglunni<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>Starfsemin \u00e1rsins milli a\u00f0alfunda<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Starfsemin n\u00fa hefur\u00a0einkum sn\u00faist um:<\/span><\/p>\n<ul>\n<li>\n<p lang=\"is-IS\"><span style=\"font-size: large;\">A\u00f0 reka og skipuleggja margv\u00edslega menningarvi\u00f0bur\u00f0i \u00ed\u00a0 Deiglunni<\/span><\/p>\n<\/li>\n<li>\n<p lang=\"is-IS\"><span style=\"font-size: large;\">A\u00f0 halda utanum og \u00fathluta listam\u00f6nnum dv\u00f6l \u00ed gestavinnustofunni<\/span><\/p>\n<\/li>\n<\/ul>\n<ul>\n<li><span style=\"font-size: large;\">A\u00f0 efla tengsl vi\u00f0 erlenda listamenn og vinna a\u00f0 tengslum \u00feeirra vi\u00f0 n\u00e6rsamf\u00e9lagi\u00f0, me\u00f0 reglulegum s\u00fdningum \u00feeirra \u00ed Deiglunni<\/span><\/li>\n<li>\n<p lang=\"is-IS\"><span style=\"font-size: large;\">A\u00f0 skipuleggja og sty\u00f0ja vi\u00f0 \u00fdmis verkefni \u00e1samt \u00fev\u00ed stu\u00f0la a\u00f0 samstarfi um listvi\u00f0bur\u00f0i af margv\u00edslegum toga<\/span><\/p>\n<\/li>\n<li>\n<p lang=\"is-IS\"><span style=\"font-size: large;\">A\u00f0 vinna a\u00f0 auknu samstarfi vi\u00f0 a\u00f0ila og f\u00e9l\u00f6g \u00e1 svi\u00f0i menninga og lista<\/span><\/p>\n<\/li>\n<\/ul>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Einnig \u00e1 \u00feessu starfs\u00e1ri, eins og tv\u00f6 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r, hefur nokkur t\u00edmi sn\u00faist um a\u00f0 vinna\u00a0 hugmyndinni um opi\u00f0 graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0i \u00ed Deiglunni fylgi. Stu\u00f0ningur vi\u00f0 hugmyndina er mikill \u00fat \u00ed samf\u00e9laginu, b\u00e6\u00f0i h\u00e9r \u00ed b\u00e6, en einnig v\u00ed\u00f0ar a\u00f0 hafa komi\u00f0 stu\u00f0ningsyfirl\u00fdsingar. Markmi\u00f0i\u00f0 er, n\u00fa sem fyrr, a\u00f0 auka enn frekar n\u00fdtingu \u00e1 Deiglunni og finna henni fj\u00f6lbreyttara hlutverk. Haldinn var fundur me\u00f0 Akureyrarstofu \u00ed Deiglunni \u00ed febr\u00faar og var upplifun okkar sem s\u00e1tu fundinn fyrir Gilf\u00e9lagi\u00f0 mj\u00f6g j\u00e1kv\u00e6\u00f0. <\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Gilf\u00e9lagi\u00f0 hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed samstarfsverkefnum Listasumars me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fatvega \u00e1n endurgjalds a\u00f0st\u00f6\u00f0u til listflutnings. Gilf\u00e9lagi\u00f0 \u00e1tti einnig frumkv\u00e6\u00f0i a\u00f0 listvi\u00f0bur\u00f0um \u00ed Deiglunni, til d\u00e6mis sams\u00fdningu 10 s\u00e6nskra listamanna, D<\/span><span style=\"font-size: large;\"><i>en besj\u00e4lade naturen. <\/i><\/span><span style=\"font-size: large;\">Fyrirhuga\u00f0 er \u00e1framhaldandi samstarf vi\u00f0 \u00feann h\u00f3p og stefnt \u00e1 a\u00f0 listamenn fr\u00e1 Akureyri s\u00fdni \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0. Nefnd \u00e1 vegum Gilf\u00e9lagsins vinnur a\u00f0 \u00feeim undirb\u00faningi. \u00de\u00e1 var f\u00e9lagi\u00f0 \u00ed samstarfi vi\u00f0 Art Ak og unni\u00f0 er a\u00f0 undirb\u00faningi samvinnuverkefnis um gestavinnustofur \u00ed Grundarfir\u00f0i, Akureyri og \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00d3tali\u00f0 er fj\u00f6lbreytilegt samstarf vi\u00f0 einstaka lista- og handverks f\u00f3lk, ungsk\u00e1ld, leiklistaf\u00f3lk og t\u00f3nlistarf\u00f3lk um \u00fdmsa listvi\u00f0bur\u00f0i og n\u00e1mskei\u00f0shald. <\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>Gestavinnustofan<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Samtals s\u00f3tti 41 listama\u00f0ur um dv\u00f6l \u00ed gestavinnustofunni og f\u00f3r \u00fathlutunarnefndin<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">yfir ums\u00f3knirnar og valdi 11 listamenn. En undanfarin \u00e1r hafa allnokku\u00f0 fleiri listamenn s\u00f3tt um en vi\u00f0 h\u00f6fum haft t\u00f6k \u00e1 a\u00f0 \u00fathluta.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Stj\u00f3rnin hefur skipst \u00e1 a\u00f0 annast gestalistamennina; a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim og a\u00f0sto\u00f0a me\u00f0 \u00fdmislegt prakt\u00edskt, a\u00f0sto\u00f0 var\u00f0andi s\u00fdninga \u00feeirra \u00ed Deiglunni og kynningar. T\u00f6luver\u00f0 vinna er f\u00f3lgin \u00ed a\u00f0 halda utanum \u00feau m\u00e1l \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u f\u00e9lagsins, fr\u00e9ttatilkynningar og a\u00f0ra uppl\u00fdsingami\u00f0lun en \u00feeim verkefnum sinnir einn stj\u00f3rnarma\u00f0ur, Hei\u00f0d\u00eds H\u00f3lm, sem b\u00fasett er \u00ed Skotlandi og sinnir \u00feessum verkefnum og \u00f6\u00f0rum sem stj\u00f3rnarsetu fylgja \u00ed fjarvinnu. H\u00fan situr einnig alla stj\u00f3rnarfundi \u00e1 fjarfundi og hefur \u00feetta fyrirkomulag gengi\u00f0 mj\u00f6g vel. <\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><span lang=\"is-IS\">Gestalistamenn sem hafa dvali\u00f0 \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0inni\u00a0 koma allsta\u00f0ar fr\u00e1 \u00ed heiminum og hafa \u00feeir haldi\u00f0 s\u00fdningar \u00e1 verkum s\u00ednum e\u00f0a\u00a0 hafa haft opi\u00f0 h\u00fas og s\u00fdnt \u00fea\u00f0 sem \u00feeir hafa veri\u00f0 a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 \u00ed listsk\u00f6pun sinni. Me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti hafa myndast mikilv\u00e6g tengsl \u00feessara vi\u00f0 listasamf\u00e9lagi\u00f0 h\u00e9r\u00a0og hafa myndast varanlegur vinskapur og menningarleg tengsl. <\/span><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><span lang=\"is-IS\">Deiglan er \u00ed sama h\u00fasi og gestavinnustofan \u00fear sem listamenn dvelja \u00ed m\u00e1nu\u00f0 \u00ed senn. Gestalistamennirnir halda oft fyrirlestra um starf sitt \u00ed Deiglunni e\u00f0a \u00ed Ketilh\u00fasinu \u00e1 \u00feri\u00f0judagsfyrirlestrum, einnig s\u00fdna listamennirnir afrakstur dvalar sinnar \u00ed Deiglunni s\u00ed\u00f0ustu helgina hvers m\u00e1nu\u00f0ar.\u00a0\u00deessar s\u00fdningar hafa veri\u00f0 mj\u00f6g skemmtilegar og vel s\u00f3ttar. Gestavinnustofur eru alltaf a\u00f0 ver\u00f0a vins\u00e6lli kostur fyrir listamenn sem vilja breyta um umhverfi og kynnast n\u00fdjum st\u00f6\u00f0um og m\u00e1 hugsa sem s\u00e9rh\u00e6f\u00f0an hluta fer\u00f0amannai\u00f0na\u00f0ina\u00f0arins. Einn helsti kostur gestavinnustofunnar okkar er a\u00f0 vi\u00f0 bj\u00f3\u00f0um listam\u00f6nnum a\u00f0 s\u00fdningarsal en \u00fea\u00f0 er \u00f3algengt. Me\u00f0 fyrirhugu\u00f0u graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0i mun skapast aukin \u00fej\u00f3nusta vi\u00f0 gestalistamennina sem yr\u00f0i enn eftirs\u00f3knarver\u00f0ari valkostur og \u00fe\u00e1 einnig bo\u00f0i\u00f0 heimaf\u00f3lki og fer\u00f0am\u00f6nnum upp \u00e1 s\u00fdningar fr\u00e1 listam\u00f6nnum \u00e1 heimsm\u00e6likvar\u00f0a sem vinnur gegn einangrun, sem \u00e1valt er viss h\u00e6tta \u00e1 fyrir l\u00edtil samf\u00e9l\u00f6g. <\/span><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>Deiglan<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00cd Deiglunni voru \u00fdmsir lista- og menningarvi\u00f0bur\u00f0ir \u00e1 t\u00edmabilinu og hefur salurinn veri\u00f0 n\u00fdttur til opinna vi\u00f0bur\u00f0a 120 daga \u00e1 \u00e1rinu og \u00fev\u00ed getur veri\u00f0 handagangur \u00ed \u00f6skjunni vi\u00f0 undirb\u00faning \u00f3l\u00edkra vi\u00f0bur\u00f0a me\u00f0 stuttu millibili. T\u00f6luvert vinnuframlag stj\u00f3rnarinnar tengist undirb\u00faningi og umsj\u00f3n me\u00f0 vi\u00f0bur\u00f0um enda vilji til a\u00f0 allt grasr\u00f3tarstarf sem tengist listum, handverki og menningu eigi v\u00edsan sta\u00f0 \u00ed Listagilinu. <\/span><\/p>\n<ul>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Opnar vinnustofur<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Lj\u00f3\u00f0aflutningur ungsk\u00e1lda<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Fluguhn\u00fdtingar<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">B\u00f3kakynningar<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">S\u00fdningar gestalistamanna<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Listasmi\u00f0ja- og graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0i fyrir b\u00f6rn<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Fundir f\u00e9lagasamtaka<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Sam\u00edskur gestalistama\u00f0ur Gilf\u00e9lagsins Thomas Colbengtson s\u00fdning<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">List \u00e1n landam\u00e6ra<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Einkas\u00fdningar og sams\u00fdningar akureyskra listamanna<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Myndlistarn\u00e1mskei\u00f0<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Dansgj\u00f6rningur<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">S\u00e6nsk sams\u00fdning 10 listamanna<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">Leiklistarn\u00e1mskei\u00f0<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\">T\u00f3nlistarvi\u00f0bur\u00f0ir<\/span><\/li>\n<li><span style=\"font-size: large;\"><span lang=\"is-IS\">\u00datg\u00e1fuh\u00f3f<\/span><\/span><\/li>\n<\/ul>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><span lang=\"is-IS\">Mikilv\u00e6gi Deiglunnar sem fj\u00f6lnota salar er \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0ur, en r\u00fdmi\u00f0 \u00fearfnast nau\u00f0synlegs vi\u00f0halds, endurn\u00fdjun l\u00fdsingar og laga \u00fearf veggi sem au\u00f0velda a\u00f0 hengja s\u00fdningar. H\u00fasvarsla og \u00ferif hafa veri\u00f0 \u00e1 h\u00f6ndum stj\u00f3rnarinnar.<\/span><\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><span lang=\"is-IS\"><b>Graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0i\u00f0<\/b><\/span><\/span><b> <\/b><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00c1 auka-a\u00f0alfundi Gilf\u00e9lagsins sem var haldinn 3. ma\u00ed 2016 var kynnt hugmynd um a\u00f0 gera opi\u00f0 graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0i \u00ed hluta Deiglunnar en a\u00f0 \u00e1fram ver\u00f0i s\u00fdningara\u00f0sta\u00f0a \u00ed andyrinu.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Gilf\u00e9laginu hafa veri\u00f0 f\u00e6r\u00f0ar tv\u00e6r graf\u00edkpressur \u00e1samt \u00fdmsum fylgihlutum sem nau\u00f0synlegir eru hverju graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0i. \u00d6nnur pressan kemur fr\u00e1 Einari H\u00e1konarsyni og hin fr\u00e1 J\u00f3h\u00f6nnu Bogad\u00f3ttur en b\u00e6\u00f0i vilja me\u00f0 s\u00ednu framlagi sty\u00f0ja vi\u00f0 uppbyggingu opins graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0is \u2013hins eina sinnar tegundar \u00e1 landinu, og kunnum vi\u00f0 \u00feeim bestu \u00feakkir. Pressurnar eru dj\u00fap\u00ferykkspressa af st\u00e6rri ger\u00f0inni, en me\u00f0 \u00feeim m\u00e1 einnig \u00ferykkja h\u00e6\u00f0arprent, tr\u00e9- og d\u00fakristur \u00e1samt plan\u00ferykki eins og ein\u00ferykk. \u00cd samf\u00e9lagi listamanna og einkum me\u00f0al graf\u00edklistamanna hefur hugmyndin hloti\u00f0 mikinn stu\u00f0ning.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00cd febr\u00faar kynnti stj\u00f3rn Gilf\u00e9lagsins \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn hugmyndina fyrir stj\u00f3rn<\/span> <span style=\"font-size: large;\">Akureyrarstofu og hlaut s\u00fa kynning g\u00f3\u00f0ar undirtektir. N\u00fa b\u00ed\u00f0ur stj\u00f3rnin svara vi\u00f0 erindi sem sent var \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>Samstarf:<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Samstarf hefur veri\u00f0 milli f\u00e9lagsins og Akureyrarstofu um Listasumar, framlag okkar hefur veri\u00f0 a\u00f0 l\u00e1na endurgjaldslaust Deigluna fyrir \u00fdmsa list- og menningarvi\u00f0bur\u00f0i og hefur \u00feetta spanna\u00f0 allar helgar og \u00feri\u00f0judaga \u00ed tvo m\u00e1nu\u00f0i e\u00f0a samtals18 daga.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Einnig hefur samstarf veri\u00f0 milli Gilf\u00e9lagsins, Listasafnsins \u00e1 Akureyri, listn\u00e1msbrautar VMA og Myndlistaf\u00e9lagsins um \u00feri\u00f0judagsfyrirlestra me\u00f0 kynningu \u00e1 fyrirlestrunum sem og a\u00f0komu gestalistamanna sem sumir halda sl\u00edka fyrirlestra \u00ed Ketilh\u00fasinu.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00de\u00e1 hefur veri\u00f0 samstarf vi\u00f0 ArtAk um s\u00fdningar og er n\u00fa, \u00feessa dagana unni\u00f0 a\u00f0 hugmynd a\u00f0 frekara samstarfi um gestavinnustofudv\u00f6l og kynningarm\u00e1l \u00fev\u00ed var\u00f0andi.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00de\u00e1 m\u00e1 telja margv\u00edslegt samstarf vi\u00f0 einstaka listamenn, innlenda og erlenda um s\u00fdningar og verkefni. \u00cd apr\u00edl h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 samstarf vi\u00f0 Barnamenningarh\u00e1t\u00ed\u00f0ina um listverkst\u00e6\u00f0i fyrir b\u00f6rn, sem f\u00e9kk g\u00f3\u00f0ar undirtektir.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>Framundan<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Frammundan er s\u00fdning sem Ingibj\u00f6rg Stef\u00e1nsd\u00f3ttir mun st\u00fdra, sem hefur vinnuheiti\u00f0 \u2018\u00derj\u00e1r erlendar konur\u2019 en \u00fear s\u00fdna text\u00edllistakonur af erlendu bergi brotnu, b\u00fasettar \u00e1 Akureyri, verk s\u00edn. <\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Einnig er fyrirhugu\u00f0 sams\u00fdning 2020 listamanna fr\u00e1 Akureyri og n\u00e1grenni \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0, sem er li\u00f0ur \u00ed a\u00f0 halda tengslum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 listamenn sem s\u00fdndu hj\u00e1 okkur \u00ed september.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00c1fram ver\u00f0ur stu\u00f0la\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 listam\u00f6nnum ver\u00f0i au\u00f0velda\u00f0 a\u00f0 koma list sinni \u00e1 framf\u00e6ri,\u00a0eins og hinga\u00f0 til. Vilji er til a\u00f0 auka ennfrekar samstarf vi\u00f0 a\u00f0ila sem vinna a\u00f0 listum og menningu. \u00c1framhaldandi er undirb\u00faningsvinna og skipulag opins graf\u00edkverkst\u00e6\u00f0is. <\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>Atvinnumennska og \u00e1hugamennska<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Umr\u00e6\u00f0an um \u00e1hugamenn, fr\u00edstundam\u00e1lara e\u00f0a sunnudagsm\u00e1lara er \u00f3frj\u00f3 skipting, \u00e6tli raunin s\u00e9 ekki s\u00fa a\u00f0 95-99 % allra starfandi myndlistarmanna vinni ekki launu\u00f0 st\u00f6rf me\u00f0 sinni vinnu a\u00f0 list sinni. Einnig er umr\u00e6\u00f0a um mennta\u00f0a listamenn og \u00f3mennta\u00f0a nokku\u00f0 \u00e1 villig\u00f6tum og er \u00e1g\u00e6tt d\u00e6mi um \u00feegar einn \u00e1g\u00e6tur listama\u00f0ur \u00der\u00e1ndur \u00de\u00f3rarinsson f\u00e9kk ekki inng\u00f6ngu \u00ed S\u00cdM (Samband \u00edslenskra myndlistarmanna) vegna skorts \u00e1 BA gr\u00e1\u00f0u \u00ed myndlist.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u er mikilv\u00e6gt a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 og vinna a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 listamenn geti gefi\u00f0 sig a\u00f0 sinni list, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 grei\u00f0slur fyrir vinnu s\u00edna. A\u00f0 efla \u00feekkingu \u00e1 listum svo einstaklingar og stofnanir \u00f6\u00f0list frekari \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 eignast \u00ed listaverk. A\u00f0 listama\u00f0urinn s\u00e9\u00a0studdur me\u00f0 framl\u00f6gum e\u00f0a styrkjum, en einnig a\u00f0 hann geti komi\u00f0 list sinni \u00e1 framf\u00e6ri \u00e1n \u00feess a\u00f0 setja fj\u00e1rhagslega afkomu s\u00edna \u00ed vo\u00f0a, \u00fear er mikilv\u00e6gi sj\u00e1lfbo\u00f0avinnu grasr\u00f3tarinnar ein forsenda og \u00fear er Gilf\u00e9lagi\u00f0 me\u00f0 Deigluna mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\"><b>Huglei\u00f0ingar formanns<\/b><\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">Eins og \u00feessi sk\u00fdrsla s\u00fdnir er Gilf\u00e9lagi\u00f0 afar virkt og v\u00ed\u00f0fe\u00f0mt menningarf\u00e9lag sem setur mikinn svip \u00e1 listal\u00edfi\u00f0 \u00e1 Akureyri.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-size: large;\">\u00cd raun er Gilf\u00e9lagi\u00f0 ein helsta mi\u00f0st\u00f6\u00f0 grasr\u00f3tar listamanna \u00fear sem stj\u00f3rnin og margur f\u00e9lagsma\u00f0urinn vinnur\u00a0miki\u00f0 starf \u00ed sj\u00e1lfbo\u00f0avinnu. \u00c1n sj\u00e1lfbo\u00f0avinnunnar v\u00e6ri listafl\u00f3ra \u00ed okkar samf\u00e9lagi ekki svipur hj\u00e1 sj\u00f3n. Mikilv\u00e6gi hennar fyrir vi\u00f0gang, e\u00f0lilegan v\u00f6xt listasamf\u00e9lagsins er eins mikilv\u00e6gt og s\u00farefni\u00f0 fyrir manneskjuna. S\u00fdnileiki listanna \u00ed listas\u00f6lum er oft einungis toppurinn af \u00edsjakanum en hin \u00f3s\u00fdnilega i\u00f0ja grasr\u00f3tarinnar er \u00fea\u00f0 sem s\u00ed\u00f0ur er gefin gaumur \u00ed skarkala samt\u00edmans. \u00d6ll i\u00f0ja grasr\u00f3tarinnar er algj\u00f6r forsenda \u00feess a\u00f0 s\u00e1 s\u00fdnileiki, umr\u00e6ddur toppur s\u00e9 \u00ed st\u00f6\u00f0ugri endurn\u00fdjun. \u00deessi vinna sem \u00e1vallt er unnin \u00ed hugsj\u00f3n og sj\u00e1lfbo\u00f0avinnu. Sj\u00e1lft sk\u00f6punarstarfi\u00f0 sem og f\u00e9lagsl\u00edf og ums\u00fdsla um \u00fdmis fagleg m\u00e1lefni er \u00f3greidd vinna. Fj\u00f6ldi listamanna vinnur \u00ed raun tv\u00f6falda vinnu, a\u00f0 sinni listsk\u00f6pun og \u00fdmsum faglegum \u00fe\u00e1ttum greinarinnar og svo vinnan fyrir saltinu \u00ed grautinn. Nokku\u00f0 hef \u00e9g heyrt or\u00f0r\u00f3m \u00ed b\u00e6num a\u00f0 Deiglan s\u00e9 ekki g\u00f3\u00f0ur kostur sem s\u00fdningarsalur, \u00feessi or\u00f0r\u00e6\u00f0a er afleit og grefur undan mikilv\u00e6gi Deiglunar sem fj\u00f6lnota sals og vissulega m\u00e1 b\u00e6ta h\u00e9r svo betur fari. En \u00feeir erlendu listamenn sem f\u00e1 afnot af Deiglunni l\u00fdsa undantekningalaust \u00feeirri sko\u00f0un sinni a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 f\u00ednt og \u00e1hugavert r\u00fdmi.<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gilf\u00e9lagi\u00f0. Sk\u00fdrsla stj\u00f3rnar fyrir starfs\u00e1ri\u00f0 milli a\u00f0alfunda 2018\/2019 F\u00e9lagi\u00f0 Gilf\u00e9lagi\u00f0 er n\u00fa a\u00f0 lj\u00faka tuttugasta og fimmta starfs\u00e1ri s\u00ednu, en \u00fea\u00f0 var stofna\u00f0 30. n\u00f3vember 1991. \u00dea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 fyrstu starfs\u00e1rin hafi fari\u00f0 \u00ed a\u00f0 m\u00f3ta hugmyndina&#46;&#46;&#46;<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1770,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_exactmetrics_skip_tracking":false,"_exactmetrics_sitenote_active":false,"_exactmetrics_sitenote_note":"","_exactmetrics_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[4,71],"tags":[],"class_list":["post-1890","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir","category-fundargerdir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1890","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1890"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1890\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1893,"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1890\/revisions\/1893"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/1770"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1890"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1890"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/listagil.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1890"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}